Fáanlegt í App Store fyrir iPad
Æfing í grunnskólastærðfræði þar sem barnið skrifar í alvöru.
iPad-forrit þar sem barnið þitt leysir stærðfræði eins og hún á að vera leyst: með eigin hendi, skref fyrir skref.
Gervigreindarkennari les rithöndina, segir hvað var rétt, hvað má laga, og hvernig. Barnið skrifar lausnina sjálft, alla leið, eins og á blað.
Á iPad færðu kóða fyrir mánuð frítt. Á Android kemstu í prófunarhópinn.
Veldu heiminn, veldu hetjuna
Ég vildi ekki að barnið mitt lærði stærðfræði með því að pota í skjá.
Opnaðu flest stærðfræðiöpp og undir niðri er sama vélin. Fjórir valmöguleikar, einn réttur, pot, glimmer, næsta spurning. Barn getur giskað sig upp í langa röð og lært ekki neitt. Sum þeirra eru orðin meiri leikur en stærðfræði, og stærðfræðin sem eftir er minnir helst á að slá mól ofan í holur.
Talnabox sér ekki hugsunina og getur því hvorki verðlaunað hana né leiðrétt. Barn sem framleiðir bara lokatölur er að æfa sig í að framleiða lokatölur. Uppsetningin, röð skrefanna, að áætla stærðina áður en reiknað er: þarna er stærðfræðin, og ekkert af því lifir af eitt pot.
Þetta forrit er blað. Skjárinn er rúðustrikað blað, penninn er penni og það er ekkert til að pota í fyrir stig. Barnið skrifar lausnina alla, eins og í stílabók. Svo er lesið það sem það skrifaði. Ekki lokatalan, heldur vinnan: hvort dæmið var rétt sett upp, hvort skrefin séu í röð, hvar það rann til. Það kemur á nokkrum sekúndum, meðan dæmið er enn fyrir framan barnið.
Stærðfræði á blaði, eins og hún hefur alltaf verið gerð. Með einhverjum yfir öxlinni sem hefur alltaf tíma. Kennari með þrjátíu nemendur í stofunni kemst aldrei yfir að fara yfir hvert skref hjá hverju barni, hversu góður sem hann er.
Krossaspurningar eiga heima í stuttum prófum þar sem verið er að kanna stöðuna hratt. Í æfingum biðjum við aldrei um kross að fyrra bragði, en þær koma enn fyrir þegar skrifuðu dæmin í banka færninnar klárast. Við erum að skrifa fleiri. Öll æfing skrifuð er markmiðið.
Hver stendur á bak við þetta
Ég heiti Björn Orri Guðmundsson. Ég er faðir og verkfræðingur, og stofnandi og forstjóri Aftra, sem sýnir stjórnendum hvernig fyrirtækin þeirra líta út frá sjónarhóli tölvuþrjóta. Næsta stig smíðaði ég af því að ég vildi betra verkfæri fyrir mitt eigið barn.
Viltu ná í mig? hae@naestastig.app · lettfeti.com
Hvernig það virkar
-
Stöðumat
Barnið byrjar á stuttu stöðuprófi, skrifuðu með penna. Forritið metur hvar það stendur og hvar á að byrja.
-
Daglegur skammtur
Um 20 mínútur á dag: æfing, orðadæmi og upprifjun sem birtist aftur á réttum tíma svo kunnáttan haldist.
-
Hvert dæmi er skrifað
Barnið leysir dæmin með penna, með útreikningunum. Sýnd vinnubrögð gefa margfalt fleiri stig en bert svar, svo það borgar sig aldrei að giska.
-
Endurgjöf á nokkrum sekúndum
Kennarinn les skriftina, segir hvað var rétt og gefur vísbendingu í stað þess að afhenda svarið.
-
Borðið opnast við kunnáttu
Hver eining endar á boss-bardaga. Næsta eining opnast við 80% árangur, ekki þegar tíminn líður. Skrímsli, gripir og tignir halda fjörinu gangandi; kunnáttan opnar hurðirnar.
Fáanlegt í App Store.
Sæktu forritið á iPad og byrjaðu. Fyrstu þrír dagarnir eru fríir í App Store, eða heill mánuður með kóða af Prófaðu-síðunni.
- Verð: 11,99 USD á mánuði eða 119,99 USD á ári í íslensku App Store. Ein áskrift gildir fyrir tvö börn.
- Penni: barnið skrifar með Apple Pencil eða Logitech Crayon. Ódýr gúmmípenni virkar líka ef kveikt er á Fingur í forritinu, en þá er engin lófavörn og höndin má ekki hvíla á skjánum.