Fæst í App Store fyrir iPad

Stærðfræði þar sem barnið sýnir útreikninginn.

App fyrir iPad. Barnið skrifar lausnina með penna, skref fyrir skref, eins og í stílabók.

Gervigreind les skriftina og segir hvað var rétt, hvar villan liggur og hvernig má laga hana. Hún gefur vísbendingu en aldrei svarið.

Sækja í App Store Prófa frítt í mánuð →

Á iPad færðu kóða sem gildir í mánuð. Á Android ferðu í prófunarhópinn á Google Play.

Barn skrifar lausn með Apple Pencil á iPad
Barnið skrifar, skilar og fær yfirferð eftir nokkrar sekúndur

Barnið velur heim og hetju

Málað ævintýrakort: kaflar ársins á slóða í gegnum hæðir og skóg, tveir kláraðir og sá þriðji hafinn, með púka sem vörð kaflans
Kortið: kaflar ársins á einum slóða og næsta skref alltaf merkt
Sama kort í Hafmeyjaríkinu: sandslóði á hafsbotni milli kóralla, með krabba sem vörð fyrsta kaflans
Hafmeyjaríkið: sama námsefni í öðrum heimi
Sama kort í Geimnum: leið milli reikistjarna, tveir kaflar kláraðir og vetrarbraut sem vörður þess þriðja
Geimurinn: heimurinn breytist, námsefnið er það sama
Val á hetju í Hafmeyjaríkinu: hafmeyja, hafmaður, höfrungur og háhyrningur
Hver heimur hefur sínar persónur

Ég vildi ekki að barnið mitt lærði stærðfræði með því að pota í skjá.

Í flestum stærðfræðiöppum velur barnið eitt af fjórum svörum og fær stig ef það hittir á rétt. Það er hægt að giska sig í gegnum heila röð af dæmum án þess að læra neitt, og sum öppin eru orðin meiri leikur en stærðfræði.

Svarbox sér bara lokatöluna. Það sér ekki hvernig dæmið var sett upp, í hvaða röð skrefin voru eða hvort barnið áætlaði svarið áður en það reiknaði. Það er samt þar sem stærðfræðin er, og það sést ekki nema barnið skrifi.

Í Næsta stigi er skjárinn rúðustrikað blað. Barnið skrifar alla lausnina með penna, eins og í stílabók, og appið les hana: hvort dæmið var rétt sett upp, hvort skrefin voru í réttri röð og hvar villan kom inn. Endurgjöfin kemur eftir nokkrar sekúndur, meðan dæmið er enn fyrir framan barnið.

Kennari með þrjátíu nemendur nær ekki að fara yfir hvert skref hjá hverju barni, hversu góður sem hann er. Appið gerir það við hvert einasta dæmi.

Krossaspurningar eru notaðar í stuttum prófum þar sem þarf að kanna stöðuna hratt. Í æfingum biðjum við aldrei um kross að fyrra bragði, en krossar koma enn fyrir þegar skrifuðu dæmin í einhverri færni klárast. Við erum að skrifa fleiri, og markmiðið er að öll æfing sé skrifuð.

Þrjár línur af handskrifuðum útreikningi á rúðustrikuðu blaði við hlið dæmisins
Ekkert svarbox. Barnið skrifar útreikninginn, línu fyrir línu.
Björn Orri Guðmundsson

Hver stendur á bak við appið

Ég heiti Björn Orri Guðmundsson. Ég er faðir og tölvunarfræðingur, og stofnandi og forstjóri Aftra, sem sýnir stjórnendum hvernig fyrirtækin þeirra líta út frá sjónarhóli tölvuþrjóta. Ég byrjaði á Næsta stigi af því að ég vildi betra verkfæri fyrir mitt eigið barn.

Viltu ná í mig? hae@naestastig.app · lettfeti.com

Svona virkar þetta

  1. Stöðupróf

    Barnið byrjar á stuttu stöðuprófi og skrifar svörin með penna. Út frá því velur appið hvar það á að byrja.

  2. Dagleg æfing

    Um 20 mínútur á dag: æfingar, orðadæmi og upprifjun á réttum tíma svo kunnáttan haldist.

  3. Hvert dæmi er skrifað

    Barnið leysir dæmin með penna og sýnir útreikninginn. Svar með útreikningi gefur margfalt fleiri stig en svarið eitt, svo það borgar sig ekki að giska.

  4. Endurgjöf eftir nokkrar sekúndur

    Appið les skriftina, segir hvað var rétt og gefur vísbendingu í stað þess að gefa upp svarið.

  5. Næsti kafli opnast þegar barnið kann efnið

    Hver kafli endar á lokabardaga og sá næsti opnast við 80% árangur. Tíminn sem líður skiptir engu. Skrímsli, gripir og tignir gera æfinguna skemmtilegri, en kunnáttan ræður því hvenær barnið kemst áfram.

Nærmynd af rúðustrikuðu blaði á iPad þar sem barn skrifar með Apple Pencil og skugginn af pennanum sést á blaðinu
Apple Pencil á rúðustrikuðu blaði, eins og í stílabók
Prósentudæmi þar sem barn hefur skrifað þrjár línur af útreikningi með Apple Pencil: x = 4500, a = 20% og lokalínuna
Barnið skrifar útreikninginn sjálft, línu fyrir línu
Endurgjöf: „Flott vinna“, rétt svar og plús 32 stig, og kennarinn endursegir útreikninginn sem barnið skrifaði
Endurgjöfin segir hvað appið las og hvað má bæta
Hetjuskjár hafmeyjunnar: leiðangur mánaðarins með stimplum, perlusafn ársins með einni perlu fyrir hvern kláraðan kafla, og tignirnar
Leiðangur mánaðarins og safn ársins. Barnið fær umbun fyrir hvern kláraðan kafla, og tíminn í appinu gefur ekkert.
Fjölskylduspjaldið: samtala fjölskyldunnar í vikunni og besta vika hvers barns, án þess að raða þeim
Fjölskyldan: ein samtala fyrir vikuna og engin keppni milli systkina

Svona förum við með gögnin →

Fæst í App Store

Sæktu appið á iPad. Fyrstu fjórtán dagarnir eru fríir, eða heill mánuður með kóða af prufusíðunni.